2025, May 7
Published by: Visir
Written by: Dora Julia Agnarsdóttir

Jasper Smith, framleiðandi, Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, Toby Nowlan, leikstjóri og Björn Skúlason, eiginmaður forseta glæsileg á hátíðarsýningu Hafsins.
Karim Iliya/Kogia
Það var margt um manninn í Smárabíói síðastliðinn föstudag á hátíðarsýningu Hafsins, nýjustu myndar Davids Attenborough. Meðal gesta voru forseti Íslands, Halla Tómasdóttir og eiginmaður hennar Björn Skúlason, en vinur þeirra hjóna, enski athafnamaðurinn Jasper Smith sem er eigandi Arksen, er einn af framleiðendum myndarinnar og kom hann sérstaklega til landsins til að taka þátt í viðburðinum.
Nowlan, leikstjóri myndarinnar, var viðstaddur sýninguna og hélt kraftmikið erindi um mikilvæg skilaboð hennar fyrir sýningu. Halla ávarpaði salinn eftir sýninguna, þakkaði aðstandendum fyrir stórkostlegt verk og ítrekaði mikilvægi umhverfisverndar á landi og í hafinu.
Í fréttatilkynningu segir að gestir sýningarinnar hefðu samþykkt eftirfarandi yfirlýsingu með handauppréttingu:
„Við, gestir á hátíðarsýningu Hafsins með David Attenborough, í Smárabíói 9. maí 2025, hvetjum Alþingi og ríkisstjórn landsins til dáða við vernd hafsins og lífríkisins sem í því býr.
Hafið umhverfis Ísland hefur verið grundvöllur tilveru okkar á þessu skeri frá því að land byggðist, og lögum samkvæmt ber okkur að vernda það.
Við styðjum ráðafólk þjóðarinnar í þeirri vegferð að ná markmiði SÞ um verndun að minnsta kosti 30 prósent hafs og lands fyrir árið 2030, sem samþykkt var á COP15 í Montréal árið 2022, og bjóðum ennfremur fram krafta okkar.
Samningurinn um líffræðilega fjölbreytni kveður sérstaklega á um að til að markmiðinu verði náð þurfum við öll að gera það saman og enn fremur að við náum ekki loftslagsmarkmiðum Parísarsamkomulagsins ef við uppfyllum ekki markmiðið um vernd hafsins.
Við þurfum að hlúa að uppeldis- og búsvæðum nytjategunda og allrar fæðikeðju þeirra. Svo sem kórallana og kóralrifin, þaraskógana, neðansjávarfjöllin og -hryggina. Þá megum við engan afslátt eða veita undanþágur frá lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda.
Heilbrigði hafsins er grundvallaratriði fyrir framtíð okkar allra.“

Ingibjörg Þórðardóttir, einn skipuleggjanda kvöldsins.
Karim Iliya/Kogia
Bakhjarlar þessarar hátíðarsýningar voru Náttúruverndarsamtök Íslands, Landvernd, Icelandic Wildlife Fund, Hvalavinir, NASF og Ungir umhverfisverndarsinnar. Samtökin Last Whaling Station voru sömuleiðis ein af aðal skipuleggjendunum.