2025, May 7

Published by: Visir

Written by: Dora Julia Agnarsdóttir

Ocean With David Attenborough var frumsýnd í London í gær og þar voru þeir eins og unglingar, David Attenborough að nálgast hundrað ára aldurinn og Karl kóngur.

Kate Green/Getty Images for National Geographic

Nýjasta mynd Sir David Attenborough, Ocean with David Attenborough, var heimsfrumsýnd í London í gær í viðurvist Sir David, Karls Bretakonungs, fyrrverandi loftslagsfulltrúa Bandaríkjanna John Kerry og mörgum þekktum leikurum og hagsmunaðilum í hafvernd og nýtingu.

 

Á frumsýningunni voru einnig Ingibjörg Þórðardóttir, fyrrum ritsjóri á BBC og CNN en  hún vinnur núna í umhverfismálum og Kristín Ólafsdóttir kvikmyndaframleiðandi.

 

„Það var stórkostlegt að vera í salnum með Sir David,“ segir Ingibjörg. Hún lýsir miklum fagnaðarlátum þegar hann kom inn með kóngnum. Sir Davíð stóð og veifaði til viðstaddra. Hann leit ekki út fyrir að vera að nálgast 100 ára aldurinn en hann er nú 99 ára gamall.

Ingibjörg Þórðardóttir og Carolina Manhusen, ein af fjárfestum sem kemur til Íslands í tengslum við frumsýningu myndarinnar hérlendis.

aðsend

„Þeir eru heldur ekki margir sem geta takið athygli frá kónginum eins og hann. Fólk var þarna honum til heiðurs. Ekki má vanmeta hversu dáður hann er í bresku samfélagi og um allan heim fyrir alla þá vinnu sem hann hefur gert til að vernda plánetuna og það var mjög augljóst,“ bætir Ingibjörg við.

 

Umrædd mynd í sýningar á Íslandi 8 mars í Smárabíó á 99 ára afmælisdegi Attenborough og verður sérstök frumsýning á vegum Náttúruverndarsamtök Íslands, Landverndar, Icelandic Wildlife Fund, Hvalavina og NASF haldin 9. maí að viðstöddum leikstjóra myndarinnar sem er Toby Nowlan.

Ingibjörg Þórðardóttir, Jasper Smith, einn af aðalfjármögnunaraðillinn af Ocean, Carolina Manhusen fjárfestir. Jasper og Carolina koma bæði til Íslands í tengslum við frumsýninguna 9. maí.

aðsend

Með Nowlan verða líka Jasper Smith, stofnandi Arksen og 10% For the Ocean, sem er einn af þeim sem fjármögnuðu myndina og Carolina Manhusen sem er mikill fjárfestir í frumkvöðlafyrirtækjum í sjálbærri nýtingu hafsins.

 

„Skilaboð myndarinnar eru mjög skýr og það var enginn sem fór út úr salnum í neinum vafa um hver ósk Sir David er.“ Ingibjörg segir afar hvetjandi að heyra hversu mikla von hann hefur um að þrátt fyrir þann mikla skaða sem mannkynið hefur valdið höfum heimsins, sé enn von um bata.

 

Þrátt fyrir að lýsa alvarlegri stöðu hafsins, bendir Attenborough á að rannsóknir sem gerðar voru við gerð myndarinnar sýni að hafið geti náð sér hraðar en við höfum nokkru sinni ímyndað okkur, það getur lifnað við á ný. Ef við björgum hafinu, björgum við heiminum okkar.

Ingibjörg Þórðardóttir og Kristín Ólafsdóttir, kvikmyndaframleiðandi.

aðsend

Myndin kemur út rétt fyrir hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldin verður í Nice í Frakklandi í júní. Þar er vonast til að fleiri lönd staðfesti samkomulag frá 2023 um verndun líffræðilegs fjölbreytileika í höfunum. Hingað til hafa aðeins 21 land staðfest samkomulagið, en 60 staðfestingar eru nauðsynlegar til að það taki gildi.

MICHAEL ROSEN

Michael Rosen has experience at a partner and co-founder level in private equity and venture capital funds. He has evaluated, executed and managed investments across many sectors and stages, raised capital, managed teams and worked closely with portfolio companies. He was the COO of a listed investment vehicle, and most recently the CIO of Ocean Born Impact where he oversaw investment strategies focused on companies that positively impact planetary health, emphasizing areas such as the energy transition, clean transportation, sustainable production, and enabling technologies.

 

Earlier in his career, Michael served as a Partner at Pamplona Capital Management, where he was responsible for identifying and managing investment opportunities across various sectors. His career began as an Analyst in the Financial Sponsors Group at Merrill Lynch in London.

 

Michael continues to make and support impactful investments that combine environmental sustainability with technological innovation, leveraging his extensive experience in finance and investment management. His investments include impact-focused businesses such as Olio (food waste), Skin Analytics (Al for skin cancer detection), Bramble Energy (hydrogen fuel cells), and CHOOOSE (carbon-offsetting and mitigation).

 

Michael graduated from Oxford University in 2001 with a first class degree in PPE (Philosophy, Politics and Economics), and in 2024 he published his first novel, The Consciousness Company, about a start-up company.

 

Michael is currently a venture partner for the impact fund, Mustard Seed Maze, and is happy to talk about private equity, venture capital and impact investing.